Frábćr ţátttaka í Jólaleik Grindavik-Experience

  • Fréttir
  • 22. desember 2011

Nú er lokaspretturinn í Jólabænum Grindavík og Jólaleik Grindavík-Experience þar sem eru 25 glæsilegir vinningar í skemmtilegum jólaleik. Þátttaka hefur aldrei verið eins góð. Verslið í þremur verslunum og/eða fyrirtækjum á listanum sem dreift var með Jólablaðinu og fæst í búðunum og fáið stimpil því til staðfestingar. Skilið þátttökuseðli í kassa í anddyri í verslunarmiðstöðinni og munið að setja nafn og símanúmer á seðilinn. Jólasveinninn dregur út fjölda vinninga kl. 18:00 á Þorláksmessu. Verðmæti vinninga í heildina er um 200.000 kr.

21 fyrirtæki tekur þátt í Jólaleiknum:
Aðalbraut, Bláa lónið, Betra hár, Blómakot, Bókabúð Grindavíkur, Fagra, Hárhornið, Hérastubbur, Kara snyrtistofa, Kanturinn, Lyfja, Mamma Mía, Nettó, Northern Light Inn, Palóma - föt og skart, Rossini, Hár Anna, Salthúsið, Snyrtistofa Hildar, Snyrti, nudd og fótaaðg. Margrétar, Söluturninn Skeifan, Vélsmiðja Grindavíkur. Glæsilegir vinningar en heildarverðmæti er um 200.000 kr.

Nöfn vinningshafa verða birt hér á síðunni á Þorláksmessukvöld.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir