Nemendur voru flestir fegnir að komast í jólafrí. Þeir gerðu sér glaðan dag á síðustu metrunum inn í jólafríið á litlu jólunum. Litlu jólin hafa öðlast sess í hugum nemenda sem síðasti skóladagur á árinu og upphaf jólaleyfis sem stendur frá 20. desember og fram til 3. janúar á nýju ári. Þau eru með hefðbundnu sniði þar sem nemendur mæta prúðbúnir til stofu sinnar, hlýða á boðskap jólanna og dansa í kringum jólatré. Fast hefur verið haldið í þessar hefðir í grunnskólanum.
Á eldri stigum er auk þess dansleikur í Grunnskólanum í beinu framhaldi af stofuskemmtun og jólatrésdansi. Dansað var í sal skólans og sá hinn kunni skífuþeytir Heiðar Austamann um að halda uppi fjörinu eins og honum er einum lagið. Það voru því þreyttir en glaðir nemendur sem héldu í jólafrí að því loknu.
Á yngsta stiginu í Hópsskóla var einnig dansað í kringum jólatréð. Þar sást einnig til tveggja pörupilta í rauðum fötum. Þegar betur var að gáð kom í ljós að þar voru á ferðinni bræður tveir, Stekkjastaur og Stúfur, sem vöktu mikla athygli með uppátækjum sínum. Þeir sprelluðu fyrir nemendur svo mikið að sumum þótti nóg um. Það léttist þó brúnin þegar þeir drógu mandarínur upp úr pokum sínum og sýndu að þeim var ekki alls varnað þrátt fyrir sprell og gassagang. Reyndar sögðust þeir vera með íþróttanammi sem væri mun hollara en sælgæti. Hentu margir gaman af þeim bræðrum.