Gangi áform stjórnvalda eftir um 27% veiðigjald af vergri framlegð (EBITDA) fiskiskipaflotans munu útgerðir í Grindavík greiða 654 milljónir króna á ári m.v. fyrirliggjandi forsendur á þessu fiskveiðiári. Þetta kemur fram á vef LÍÚ en Grindavík er í 3. sæti listans, næst á eftir Vestmannaeyjum og Reykjavík. Listann má sjá í heild sinni hér.