Hvað gerir þú hjá bænum? Þetta er algeng spurning til starfsfólks Grindavíkurbæjar. Á dögunum hófst nýr þáttur hér sem heitir Starfsmaðurinn þar sem má sjá stutta kynningu á starfsmanni Grindavíkurbæjar og hvað hann gerir. Næstur á dagskrá er maðurinn sem sér um tölvurnar:
Nafn: Sigurður Erlendsson.
Starfsheiti: Kerfisstjóri.
Hversu lengi hefur þú unnið hjá Grindavíkurbæ?
Ég hóf störf haustið 2003 sem kerfisstjóri (75%) og leiðbeinandi (25%) við Grunnskóla Grindavíkur. Tók við starfi kerfisstjóra Grindavíkur árið 2005 og var til haustsins 2007, en þá fór ég til starfa hjá TM Software. En kom aftur haustið 2009 til starfa sem kerfisstjóri hjá bænum.
Í hverju felst starfið?
Umsjónarmaður tölvudeildar hefur m.a. umsjón með netþjónum bæjarins, uppsetning á hug- og vélbúnaði, þjónusta við notendur, ábyrgð á fjárhagsáætlun, innkaupum á tölvubúnaði, umsjón og stillingar varðandi notendur ofl.
Hvað er skemmtilegast við starfið?
Mannlegu samskiptin og fjölbreytileiki verkefna.
Eitthvað að lokum?
Gleðilega jólahátíð og heillaríkt komandi ár með þökk fyrir öll þau gömlu og góðu.