Það verður skötuveisla bæði á Salthúsinu og Sjómannastofunni Vör á Þorláksmessu. Athygli er vakin á því að panta þarf borð á báðum stöðum. Opið er á Vör bæði á hádeginu og um kvöldið og á Satlhúsinu er opið um kvöldið. Láki á Salthúsinu og Jón á Vör lofa vel kæstri skötu. Hér má sjá nánari upplýsingar:
Salthúsið:
Þorláksmessuskata frá kl. 18:00-21:00, úrvals skata á landinu með kartöflum, rófum, hnoðmör og öllu tilheyrandi!
Pantið í síma 426-9700 eða 699-2665. Verð er 3.400 kr.
Sjómannastofan Vör:
Skötuhlaðborð á Þorláksmessu í hádeginu og um kvöldið.
Skata, saltfiskur, plokkfiskur, rófur, kartöflur, hamsatólg, vestfirskur hnoðmör, síld og rúgbrauð. Verð 2.900 kr.
Borðapantanir í síma 426 8570. Vinsamlegast pantið tímanlega.