Eins og undanfarin ár verða Fréttablaðskassar teknir niður í Grindavík og öðrum bæjarfélögum í kringum áramótin. Því miður hafa kassarnir verið sprengdir sem hefur valdið ómældum óþægindum á dreifingu Fréttablaðsins auk mikils kostnaðarauka við endurnýjum á Fréttablaðskössum. Hægt verður að nálgast Fréttablaðið á öðrum stöðum milli jóla og nýárs og verður það auglýst síðar.