Fyrr í mánuðinum tók Félag Slökkviliðsmanna í Grindavík þátt í Fjörugum föstudegi á Hafnargötunni. Margt var um manninn og myndaðist mikil jólastemmning. Boðið var uppá heitt súkkulaði með rjóma sem sló heldur betur í gegn.
Á laugardeginum var FSG síðan með sitt árlega opna hús, sjúkrabíllinn og starfslið var með í ár og voru þeir á staðnum og sýndu sinn búnað. Kveiktur var eldur og gestum boðið að prófa að slökkva í með slökkvitæki.
Vill slökkviliðið þakka öllum þeim sem kíktu við fyrir innlitið og vonandi sjáumst við aftur að ári.