Mikið verður um að vera í Jólabænum Grindavík í dag, föstudag. Aðventa Félags eldri borgara er í Miðgarði, jólafjör með Ingó Veðurguð í verslunarmiðstöðinni og lengri opnunartími. Þá er körfuboltinn með bílabónið sitt. Dagskráin í dag er eftirfarandi:
Kl. 18:00 Aðventa Félags eldri borgara í Miðgarði.
Jólabærinn Grindavík. Verslanir og þjónustuaðilar verða með lengri opnunartíma og bjóða upp á viðburði og tilboð. Opið í verslunarmiðstöðinni til kl. 21:00. Vöffluveisla í húsnæði Sparisjóðsins í verslunarmiðstöðinni þar sem mun ríkja kaffihúsastemmning.
Kl. 20:30 Ingó Veðurguð mætir með gítarinn í verslunarmiðstöðina og tekur nokkur létt lög.
Jólahlaðborð í Lavasal Bláa lónsins. Salur opnar Kl. 19:00. Borðhald hefst kl. 20. Verð: 7.900 kr á mann. Innifalið í jólahlaðborði er fordrykkur og boðskort í Bláa Lónið sem gildir út apríl 2012. Lifandi jasstónlist.
Bílabón körfuboltans:Hafið samband við Jón Gauta í síma 840 1719 eða Jóhann í síma 862 8145 og bíllinn verður hreinn um jólin.
Fólksbíll 6.000 kr.
Jepplingur 8.000 kr.
Jeppi 10.000 kr.
Stærri bílar 12.000 kr.
Ennþá stærri - eftir samkomulagi!