Í gær var haldið glæsilegt jólabingó fyrir eldri borgara í Miðgarði. Mikið var af flottum og góðum vinningum sem fyrirtæki í Grindavík og víðar gáfu í bingóið. Starfsfólk Miðgarðs færir fyrirtækjunum sem gáfu vinningana kærar þakkir fyrir framlagið. Jafnframt hvetur starfsfólk Miðgarðs eldri borgara til að koma í Miðgarð í kaffi og smákökur.