Nú er komið að því. Snillingarnir í körfunni verða með sitt árlega jólabón föstudaginn 16. og laugardaginn 17. desember. Þetta gekk gríðarlega vel í fyrra og komust færri að en vildu og kom ekki ein einasta kvörtun sem er talið vera met í Vestur-Evrópu.
Þetta er gríðarlega mikilvæg fjáröflun og því vonast körfuboltinn eftir jafngóðum ef ekki betri viðtökum en í fyrra. Verðið er það sama og í fyrra.
Hafið samband við Jón Gauta í síma 840 1719 eða Jóhann í síma 862 8145 og bíllinn verður hreinn um jólin.
Fólksbíll 6.000 kr.
Jepplingur 8.000 kr.
Jeppi 10.000 kr.
Stærri bílar 12.000 kr.
Ennþá stærri - eftir samkomulagi!