75 ár síðan björgunarsveitin Þorbjörn bjargaði 38 manna áhöfn

  • Fréttir
  • 24. mars 2006

75 ár frá fyrstu björgun með fluglínutækjum
Í dag 24. mars eru 75 ár síðan fluglínutæki voru fyrst notuð til björgunar hér á landi. Fljótlega eftir stofnun Slysavarnafélags Íslands árið 1928 var hafist handa við stofnun slysavarnadeilda og björgunarsveita víða um land og voru fluglínutækin fyrstu eiginlegu björgunartæki margra þeirra. Fluglínutæki er búnaður til bjargar mönnum úr strönduðum skipum og kom fyrst fram á sjónarsviðið í Bretlandi í kringum 1850 í þeirri mynd sem við þekkjum í dag.

Aðfaranótt 24. mars 1931 strandaði franski síðutogarinn Cap Fagnet á Hraunsfjörum austan Grindavíkur. Um borð var 38 manna áhöfn. Slæmt veður var þegar togarinn strandaði og ljóst að ekki væri unnt að yfirgefa skipið á björgunarbátum togarans.

Slysavarnadeildin Þorbjörn í Grindavík, sem stofnuð hafði verið tæpum fimm mánuðum áður, brást skjótt við og tókst að bjarga allri áhöfn togarans með hinum nýja björgunarbúnaði. Björgunin markaði ákveðin tímamót og færði mönnum heim sannindi þess hversu öflug björgunartæki fluglínutækin voru og flýtti mjög fyrir útbreiðslu þeirra. Alls eiga vel á þriðja þúsund íslenskir og erlendir sjómenn fluglínutækjunum og björgunarsveitum á Íslandi líf sitt að launa.

Síðast voru fluglínutæki notuð við björgun þegar línuskipið Núpur BA strandaði við Patreksfjörð í nóvember 2001. Björgunarsveitirnar Blakkur og Tálkni björguðu þá 14 manna áhöfn skipsins. Á síðustu árum hefur skipsströndum fækkað mikið, sem betur fer, og fluglínutækin því sjaldnar notuð við björgun. Þá hafa þyrlur og björgunarskip komið oftar að björgun úr strönduðum skipum og bátum, enda öflug björgunartæki.

Þrátt fyrir þetta eru fluglínutækin mikilvægur björgunarbúnaður og langt því frá að vera úrelt. Slæm veður geta gert þyrlur ónothæfar við björgun og þá geta fluglínutækin skipt sköpum.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bæjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum að heilsunni. Ókeypis kostir