Bókakonfekt Kaffihússins Bryggjunnar og Bókasafnsins verður 8.&15.des., kl. 20:30, á Bryggjunni. Ýmsir góðir rithöfundar munu heiðra okkur með nærveru sinni næstu tvo fimmtudaga m.a. Guðmundur Andri Thorsson, Þráinn Bertelsson, Yrsa Sigurðardóttir, Ólafur Gunnarsson, Sigurður Pálsson og fleiri. Nánar verður auglýst hverjir lesa hvort kvöld, er nær dregur. Takið því frá þessi fimmtudagskvöld og njótið aðventunnar með því að hlýða á upplestur og spjalla um bækur og fleira skemmtilegt.