Bókakonfekt Kaffihússins Bryggjunnar og Bókasafns Grindavíkur er næsta fimmtudagskvöld, 1. desember kl. 20:30, á Bryggjunni. Ýmsir góðir rithöfundar munu heiðra okkur með nærveru sinni þrjá næstu fimmtudaga - (8.&15.des. líka), m.a. Guðmundur Andri Thorsson, Þráinn Bertelsson, Yrsa Sigurðardóttir, Ólafur Gunnarsson, Sigurður Pálsson, Vigdís Grímsdóttir og fleiri.
Nánar verður auglýst hverjir lesa hvert kvöld, er nær dregur. Takið því frá þessi fimmtudagskvöld og njótið aðventunnar með því að hlýða á upplestur og spjalla um bækur og fleira skemmtilegt.