Að venju verður mikið um að vera í Grunnskóla Grindavíkur á aðventunni. Fjörið hefst á fimmtudaginn með degi íslenskrar tónlistar í Hópsskóla á fullveldisdaginn 1. des. Næsta föstudag verður opnun myndlistarsýningar nemenda í myndlistarvali í verslunarmiðstöðinni kl. 12:30. Síðan rekur hver viðburðurinn annan. Dagskrá aðventunnar má sjá hér í heild sinni:
Viðburðir hjá Grunnskóla Grindavíkur í desember 2011
01/12 Fullveldisdagurinn. Dagur íslenskrar tónlistar í Hópsskóla kl. 11:10
02/12 Opnun myndlistarsýningar nemenda í myndlistarvali í Verslunarmiðstöð kl. 12.30.
3. bekkur heldur í höfuðborgina og heimsækir m.a. Alþingi
05/12 Upplestur fyrir miðstig. Bryndís Björgvinsdóttir sem hlaut íslensku barnabókaverðlaunin árið 2011, les úr bók sinni Flugan sem stöðvaði stríðið.
Jólasöngstund á miðstigi.
06/12 Kirkjuheimsókn yngstu nemenda skólans.
07/12 Nemendur í 7. bekk koma í heimsókn í Hópsskóla og lesa jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum.
09/12 Jólasöngstund á miðstigi.
14/12 Friðarganga kl. 9.00.
16/12 Jólasöngstund á miðstigi.
19/12 Litlu jól og jólaball hjá 6. - 10.bekk kl. 18.30 - 23.30 (6. bekkir mega vera til kl. 22.30).
20/12 Litlu jól hjá 1. - 5.bekk kl. 9:30.
03/01/12 Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá.