Í kvöld, sunnudaginn 27. nóvember er síðasta sýning GRAL á leikritinu Endalok alheimsins (e. Museum af massive mistakes) sem er bráðfyndinn harmleikur um síðustu fjórar mannverurnar á jarðríki sem reyna að komast að því hvernig - og hvort - hægt sé að halda áfram eftir endalokin.
Einn leitar að mat í rústunum á meðan annar telur að skipulag sé eina leiðin til að lifa af. Síðasta konan þarf að gæta velsæmis á meðan karlarnir berjast um völdin. Hver á að elda síðustu ýsuna? Eru kartöflur nauðsynlegar með ýsunni eftir að heimurinn hefur farist? Er siðferðislega rangt að borða bækur? En að borða hvert annað? Enginn hefur svar á reiðum höndum því allir forðast öll umræðuefni sem upp koma eins og heitan eldinn. Þetta er nýtt íslenskt leikrit eftir höfunda Horna á höfði en er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. GRAL hefur áður sýnt verkin 21 manns saknað og Horn á höfði og hlotið tilnefningar til Grímuverðlauna fyrir bæði verkin og árið 2010 hlaut Horn á höfði Grímuna sem barnasýning ársins.
Sýningin hefst kl. 20:00 og miðasala er á www.midi.is
Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson
Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Víðir Guðmundsson og Benedikt Gröndal