Stemmning í verslunarmiđstöđinni - Forskot á Jólabćinn Grindavík

  • Fréttir
  • 24. nóvember 2011

Undirbúningur fyrir Jólabæinn Grindavík stendur nú sem hæst. En segja má að forskot á sæluna hafi verið tekið í kvöld. Það var líf og fjör í verslunarmiðstöðinni á dögunum þegar hinn eini og sanni Gylfi Ægisson mætti með gítarinn og tók nokkrar af sínum þekktustu perlum við góðar undirtektar.

Svo mikill fiðringur komst í fæturna á nokkrum gestum að þeir þustu út á gólf og tóku snúning. Góður straumur af fólki mætti þar sem þjónustuaðilar buðu upp á afslætti og góðgæti fyrir gesti. Fleiri uppákomur verða í verslunarmiðstöðinni í desember í Jólabænum Grindavík og má þar nefna Ingó Veðurguð og Skoppu og Skrítlu.

Jólablað Grindavíkur kemur út 1. desember nk. Þeir sem vilja senda jólakveðjur, setja auglýsingar eða koma efni í blaðið eru hvattir til þess að gera það sem fyrst, lokafrestur rennur út um helgina. Sendið upplýsingarnar á jolablad@visitgrindavik.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir