Sunnudagurinn 27. nóvember er fyrsti sunnudagur í aðventu. Þá verður messa og sunnudagaskóli í Grindavíkurkirkju á sama tíma kl. 11. En kl. 20:00 verður helgistund í kirkjugarðinum. Kveikt verður á krossljósunum og tendrað ljós á jólatrénu. Kór Grindavíkurkirkju syngur. Seld verða kerti frá Hjálparstarfi kirkjunnar á 500 kr. stk.