Grindavíkurbær auglýsir hér með eftir leiðbeinanda til að starfa við félagsmiðstöðina Þrumuna vorið 2012. Starfstímabil er frá 2. janúar til 10. maí. Leitað er að einstaklingi 20 ára og eldri sem hefur;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum og síðast en ekki en síst
- reynslu og ánægju að því að vinna með börnum og unglingum.
Vinnutími er seinni part dags og fram á kvöld flesta virka daga. Unnið er á vöktum. Leiðbeinandi sér um að skipuleggja og undirbúa dagskrárliði í samvinnu við Þrumuráð og í samráði við sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar í síma 420 1100, netfang: kreim@grindavik.is
Umsækjendur fylli út umsóknareyðublað sem er að finna á heimasíðu bæjarins (Umsókn um starf hjá Grindavíkurbæ) og skili á bæjarskrifstofu Grindavíkur í síðasta lagi föstudaginn 16. desember n.k.
Grindavíkurbær.