Félagsþjónustan í Grindavík óskar eftir fólki til starfa við liðveislu og jafnframt eftir stuðningsfjölskyldum. Auglýsingarnar má sjá hér:
Óskað er eftir fólki til starfa við liðveislu.
Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð við fatlaða sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.
Athygli er vakin á að störf liðveitenda eru metin til eininga í Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
Óskað er eftir stuðningsfjölskyldum
Stuðningsfjölskylda vinnur samkvæmt skilgreiningu barnaverndar og/eða málefnum fatlaðra.
Að vera stuðningsfjölskylda felur í sér að taka á móti barni á einkaheimili í því skyni að tryggja öryggi barnsins, létta álagi af því og fjölskyldu þess og leiðbeina foreldrum og styðja þá í uppeldinu.
Upplýsingar veitir Björg Ólöf í síma 420 1100.