Eldey - kór eldri borgara á Suðurnesjum heimsækir Víðihlíð laugardaginn 3. desember kl. 14:00. Óli, Gulli og Siggi munu koma í Víðihlíð 6. desember kl. 15:00 og spila fyrir eldri borgara í salnum á efri hæð. Þeir leika á harmonikkur og gítar og munu spila létt og skemmtileg lög í bland við jólalögin. Þriðjudaginn 13. desember munu Friðarliljurnar spila og syngja fyrir eldri borgara í Víðihlíð kl. 13:30.