Nýlokið er könnun um líðan meðal nemenda í 3.-10. bekk í Grunnskóla Grindavíkur. Niðurstöður hafa verið kynntar. Spurningarnar hljóðuðu um líðan í skólanum, líðan í bekknum, um vini í skólanum. Þá var spurt um einelti, hvort viðkomandi viti um einhvern sem er lagður í einelti og hvort sá eða sú sem er spurð er lagður eða lögð í einelti.
Fernir möguleikar voru á svari, mjög vel, vel, sæmilega eða illa um líðan. Niðurstöður sýna að 82,8% nemenda líður mjög vel eða vel í skólanum, 13,7 líður sæmilega og 3,5% nemenda líður illa í skólanum. Í bekknum svöruðu 84,2% nemenda því að þeim liði mjög vel eða vel í bekknum sínum 14,3% líður sæmilega og 1,5% líður illa í bekknum sínum.
98,8% nemenda játti því að eiga vin í skólanum en 1,2% svöruðu því neitandi. Um einelti voru 13,7% aðspurðra sem sögðust vita um nemendur sem væru lagðir í einelti en 86,3% svöruðu því neitandi en 6,4% nemenda sögðust vera lagðir í einelti á móti 93,6% sögðust ekki vera lagðir í einelti.
Námsráðgjafi tók saman niðurstöður fyrir skólann í heild sinni og fyrir hvern og einn bekk.
Umsjónarkennarar vinna með niðurstöður fyrir sína bekki. Þeir hafa samband við foreldra þeirra nemenda sem líður sæmilega eða illa í skólanum og leitast við að greina vandann. Umsjónarkennarar fylgjast með líðan nemenda og er þeim boðið að hitta námsráðgjafa. Ef grunur er um einelti fer málið í könnun og unnið er samkvæmt eineltisáætlun skólans.
Könnun á líðan 2011 - 3.-10. bekkir GG.
1. Hvernig líður þér í skólanum?
2. Hvernig líður þér í bekknum þínum?
3. Áttu vin / vini í skólanum?
4. Veistu um einhverja sem eru lagðir í einelti?
5. Ert þú lögð/lagður í einelti?