Frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 sem Þorbjörn hf. í Grindavík gerir út, landaði 455 tonnum í Grindavík í gær. Aflinn var blanda af þorski, ýsu, ufsa, karfa, grálúðu og gulllaxi. Verðmæti aflans var 188 milljónir króna og er það mesta verðmæti sem skipið hefur komið með úr einni veiðiferð en hún stóð í 30 daga.