Opiđ hús hjá Lćkningalind Bláa lónsins á laugardaginn

  • Fréttir
  • 26. október 2011

Í tilefni Alheimsdags psoriasis verður opið hús í Bláa Lóninu Lækningalind frá kl. 09.00 - 16.00 laugardaginn 29. október. Fjölbreytt og fræðandi dagskrá verður í boði. Nudd sem fram fer í Lóni Lækningalindarinnar verður í boði frá kl. 10.30 -12.30. 

Steingrímur Davíðsson, húðlæknir Bláa Lónsins Lækningalindar mun flytja erindi sem ber heitið: Nýgreindur psoriasis! Meðferðarúrræði kl. 13.00. Kynning á starfsemi SPOEX hefst kl. 14.00 og mun Albert Ingason, formaður kynna starfsemi samtakanna.

Alheimsdagur psoriasis er haldinn þann 29. október ár hvert . Markmið dagsins er að fræða fólk um psoriasis sjúkdóminn og áhrif hans á líf fólks. Í ár er áherslan á aukna umræðu um sjúkdóminn og hvernig eigi að bregðast við honum.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir