Galli hefur komið í ljós í gervigrasi fjölnota íþróttahússins Hópsins sem var opnað haustið 2009. Gervigrasið er laust í sér og hefur raknað upp og látið verulega á sjá. Málið var tekið fyrir í bæjarráði þar sem bæjarstjóra var falið að vinna málið áfram og ræða við verktakann um ábyrgð hans á gallanum og lausn málsins.