Léttmessa verður í Grindavíkurkirkju sunnudaginn 23. október kl. 20:00. Hljómsveitin Logos mun leiða sönginn. Hljómsveitin skipa: Margrét Erla Þorláksdóttir, Sigurbjörg Hilmarsdóttir, Jóhann Grétarsson, Kristján Grétarsson og Gunnar Böðvarsson. Grindvíkingar eru hvattir til þess að mæta í léttmessuna.