Hitaveita Suðurnesja hefur sótt um leyfi til Umhverfisstofnunar til að hefja
tilraunaboranir í á 300 ferkílómetra svæði á Reykjarnesi, sem að hluta nær inn
á Reykjanesfólkvang.
Verið er að leita að bestu stöðunum til að reisa virkjanir fyrir álver Norðuráls
í Helguvík.Nú þegar hefur Hitaveitan fengið framkvæmdaleyfi í Trölladyngju og
hefur borað þar eina holu.
Stjórn Reykjanesfólkvangs óttast afleiðingarnar og vill að svæðinu verði þyrmt.
Landvernd er að vinna að ályktun um málið.