Getraunaþjónusta fótboltans hefst á nýjan leik á laugardag en opið verður í Gula húsinu fyrir alla tippara til kl. 13:00 en síðan til 14:00 um þar næstu helgi þegar tíminn í Evrópu breytist. Tipparar eru hvattir til þess að koma við í Gula húsinu og tippa en potturinn er 90 milljónir króna. Þá er heitt á könnunni og nýjustu fréttir af þjálfaramálum!