Guđlaugur Ţór á opnum fundi Sjálfstćđisfélags Grindavíkur

  • Fréttir
  • 13. október 2011

Sjálfstæðisfélag Grindavíkur mun í vetur verða með opna fundi annan laugardagsmorgun í mánuði, þar sem rædd verða málefni sem brenna á hverju sinni. Fengnir verða frummælendur, ýmist heima- eða aðkomumenn, allt eftir efni fundarins hverju sinni. Fundir þessir verða frá kl. 11:00 til 12:00 í Salthúsinu. 

Fyrsti fundur verður laugardaginn 15. október og mun Guðlaugur Þór Þórðarson koma og ræða um endurreisina og bankana. 

Allir eru hjartanlega velkomnir og er það von Sjálfstæðisfélagsins að Grindvíkingar sýni þessum fundum áhuga hvar í flokki sem þeir standa og gefi sér þennan klukkutíma til að ræða málin og skiptast á skoðunum.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir