Grindavík mćtir KR - Nýr Kani sem reyndi fyrir sér í NFL

  • Íţróttafréttir
  • 9. október 2011

Körfuboltavertíðin hefst í dag með hinum árlega leik um Meistara meistaranna. Grindavík sækir heim Íslands- og bikarmeistara KR í karlaflokki í íþróttahúsi KR kl. 19:15. Grindavík hefur gengið frá samningum við Bandaríkjamanninn J'Nathan Bullock um að leika með liðinu í Iceland Express-deild karla í vetur. Bullock er greinilega margt til lista lagt en hann hefur æft með NFL-liðinu New York Jets.

Grindavík hefur því fengið tvo Bandaríkjamenn til liðs við félagið en fyrir var búið að semja við Giordan Watson, leikstjórnanda. Bullock spilar sem kraftframherji.

Bullock keppti bæði í körfubolta og bandarískum ruðningi í framhaldsskóla en valdi að fara á körfuboltastyrk í Cleveland ríkisháskólann. Þar var hann stigahæsti leikmaður körfuboltaliðsins síðustu þrju árin sín en á lokaárinu skoraði hann að meðaltali fimmtán stig í leik og tók sjö fráköst.

Eftir að Bullock útskrifaðist úr háskóla var honum boðið til æfinga hjá NFL-liðinu New Jersey Nets en hann fékk þó ekki samning hjá liðinu.

Grindavík reyndi að fá kappann fyrir tveimur árum síðan en þá valdi hann að fara til Ástralíu. Fram kemur á heimasíðu Grindavíkur að meira framboð sé á bandarískum leikmönnum nú en oft áður vegna verkfalls NBA-leikmanna að því er segir á Vísi.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!