22 milljónir króna frá Menningarráđi Suđurnesja til 32 verkefna

  • Fréttir
  • 8. október 2011

Menningarráð Suðurnesja veitti í dag styrki til 32 verkefna á Suðurnesjum. Styrkirnir hljóða upp á 22,1 milljón króna. Í ár var sótt um 49 verkefnastyrki upp á 46,9 milljónir. Heildarfjárhæð verkefnanna var metin af aðstandendum upp á 138,6 milljónir króna. Úr mörgum góðum verkefnum var að velja og urðu mörg áhugaverð verkefni að lúta í lægra haldi þetta árið en Menningarráð Suðurnesja hvetur þá umsækjendur að leggja ekki árar í bát, heldur sækja um að nýju fyrir næstu úthlutun.

Eftirtaldir fengu úthlutun (grindvísk verkefni feitletruð):

1.500.000 - Bryn Ballett Akademían
Þróun og efling menningar á Suðurnesjum með kynning og kennsla á listdansi fyrir stúlkur og drengi í leik- grunn- og framhaldsskólum.


1.500.000 - Óperuhátíð í Reykjanesbæ
Árleg sumaróperuhátíð í Reykjanesbæ. Stefnt er á enn frekara samstarf fjölmargra aðila og öfluga og fjölbreytta markaðssókn á verkefninu.


1.200.000 - List án landamæra á Suðurnesjum
Listahátíð sem haldin er einu sinni á ári með þátttöku fatlaðra og ófatlaðra listamanna, einstaklinga og hópa. Fimm sveitarfélög á Suðurnesjum.


1.200.000 - Safnahelgi á Suðurnesjum
Sameiginleg kynning á söfnum, setrum og sýningum sem eru í boði á Suðurnesjum. Verkefnið á sér stað utan hefðbundins ferðamannatíma. Fimm sveitarfélög á Suðurnesjum.


1.200.000 - Halarass - fjölskyldu og barnaleikrit
Leikritið er um vinina Björn og Jórunni. Verkið er sjálfstætt framhald af fyrra verki GRAL hópsins, Horn á Höfði. Frumsýnt í nóvember 2012.


1.000.000 - Merkingar sögufrægra staða á Rosmhvalanesi
Söguskilti - Merkingar á völdum stöðum til kynningar fyrir ferðamenn í tengslum við undirbúning og gerð Ferðamannavegar með strandlengjunni frá Hafnavegi að Garði.


1.000.000 - Jólaóratoría
Verk fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit byggt á jólaguðspjallinu. Kynning á verkinu hér heima og erlendis. Frumflutt á árinu 2012.


1.000.000 - Vetrarvertíðin á Suðurnesjum
Safnsýning Byggðasafnsins í Reykjanesbæ í Duushúsum opnuð á sjómannadaginn 2012.


1.000.000 - Menningardagskrá Hlöðunnar
Íslenskir og erlendir listamenn mun halda sýningar í Hlöðunni. Námskeið í skapandi skrifum í tengslum við sýningarhald. Samstarf við grunn- og leikskóla.


1.000.000 - Uppsetning nýrrar sýningar í Víkingaheimum
Gera á norrænni goðafræði betri skil í Víkingaheimum. Sýningin verður opnuð í mars.


800.000 - Jólasöngleikur
Leikfélag Keflavíkur setur á svið jólasöngleik í fullri lengd þar sem þátttakendur eru börn og unglingar á Suðurnesjum.


800.000 - Lærum og leikum með hljóðin
Verkefnið stuðlar að nýsköpun og fjölbreytni á sviði barnamenningar og áratuga þróunarvinnu á sérhæfðu framburðarefni fyrir börn.


800.000 - Þrjár listsýningar ársins 2012
Listasafn Reykjanesbæjar er eina listasafnið á Suðurnesjum og hefur sem slíkt ákveðnum skyldum að gegna. Verkefnastyrkur vegna leiðsagnar listamanna og starfsfólks, safnakennara vegna skólaheimsókna og útgáfu veglegra bæklinga á íslensku og ensku vegna listamanna og verka þeirra.


800.000 - Listahátíð barna
Barnamenningarhátíð í Reykjanesbæ. Samstarf Listasafnsins, leikskóla og grunnskóla í Reykjanesbæ.


800.000 - Menntun og menning
Barnamenningarverkefni fyrir íslenska og erlenda nemendur til að leysa eftir heimsókn á sýningar í Kvikunni auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur.


700.000 - Þorbjörn gönguleiðir
Upphafskort við Þorbjörn. Áhugaverðar sögur, gönguleiðir, vegalengd og erfiðleikastig kynnt.


700.000 - Kynning á bókmenntaarfinum
Almenningsbókasöfn á Suðurnesjum. Sex bókmenntakvöld á árinu. Kynntir verða rithöfundar og skáld fyrri tíma


600.000 - Rúnar Júlíusson í mynd
Söfnun á einn stað - myndbönd, sjónvarpsefni, tónleikar og viðtöl við Rúnar Júlíusson. Gert aðgengilegt á rafrænu formi. Til kynningar í Rokkheimum Rúnars Júlíussonar .


500.000 - Skönnun á ljósmyndum úr safni Víkurfrétta
Á árunum 1983 til ársins 2000 voru allar ljósmyndir Víkurfrétta teknar á filmu. Mikið sögulegt myndasafn sem ætlunin er að veita aðgang að á vef Víkurfrétta.


500.000 - Menningar- og sögutengd gönguhátíð
Fjórar gönguferðir um verslunarmannahelgina þar sem markmiðið er að sameina útivist, holla og góða hreyfingu við fræðslu á menningu svæðisins.


500.000 - Skólasafnið í Norðurkoti
Í Norðurkoti verður sett upp sýning á munum og rituðum heimildum sem segja frá skólagöngu barna í Vatnsleysustrandarhreppi um 1900 - 1920.


500.000 - Vísna og vitakvöld
Tónlistarveisla á sviði vísna- og þjóðlagatónlistar. Ásamt annarri fjölbreyttri menningardagskrá þessu tengt.


400.000 - Lifandi gallerý Tobbu
Sýningasalur og opin vinnustofa til námskeiðahalds. Lifandi gallerýi er ætlað að virkja fólk af svæðinu til listsköpunar bæði íslensku og erlendu áhugafólki.


400.000 - Saga slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli
Saga slökkviliðsins er saga Suðurnesja meðan á dvöl Varnarliðsins stóð.


400.000 - Saga bæjarins í myndum á vefnum
Valdar myndir sem þykja lýsa vel þróun bæjarins frá elstu myndrænu heimildum um bæinn til síðustu aldamóta. Byggðasafn Reykjanesbæjar gerir verkefnið aðgengilegt almenningi.


400.000 - Mannskaðar á Miðnesheiði
Miðnesheiðin er ein af mannskæðustu heiðum landsins. Verkefnastyrkur vegna uppsetningu minnisvarða um þá sem látið hafa lífið á Miðnesheiði í aldanna rás.


300.000 - Gospelkór í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Samstarf kirkna á Suðurnesjum. Verkefnið hefur forvarnargildi og er hugsað til að virkja ungt fólk til þátttöku í heilbrigðu og mannbætandi menningarstarfi.


300.000 - Jólabærinn Grindavík
Samstarf aðila í verslun, þjónustu og menningu í Grindavík á aðventu u menningardagskrá og viðburði.


300.000 - Margs er að minnast frá Suðurnesjum
Ljósmyndaskönnun og ljósmyndasýning á myndum af Suðurnesjum á árunum 1982-1990


300.000 - Sungið um æskuna
Tónleikar þar sem fjallað er um æskuna frá ýmsum sjónarhornum ásamt fræðslu um lag og ljóð. Sungið verður um leiki, leikföng, gæludýr, óþekkt, prakkarastrik, vöggu- og bullljóð.


200.000 - Menningartengt efni fyrir grunnskólabörn
Barnamenningarverkefnið Grallarasögur. Hver bók er tileinkuð ákveðnum stað eða efni þar sem ferðamannastaðir eru vel kynntir.


100.000 - Hagyrðingakvöld
Kvikan Auðlinda- og menningarhús stendur fyrir hagyrðingakvöld í október.

Mynd: Víkurfréttir.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!