Sem kunnugt er stóð sunddeild UMFG fyrir sundmarþoni 23. til 25. september síðastliðinn og rann ágóðinn til Garðars Sigurðssonar sem glímir við veikindi. Brynjar Örn, Rósa Dís og Sindri, iðkendur í sunddeild UMFG, heimsóttu Garðar í vikunni og afhentu honum ágóðann af áheitasundmaraþoninu.
Alls voru syntir 262,5 km en krakkarnir áttu þessa hugmynd sjálf.
Sunddeildin sendir Garðari og fjölskyldu baráttukveðjur.