Það er heldur betur stór helgi framundan í boltanum. Á morgun sækir Grindavík Eyjamenn heim og um kvöldið er glæsilegt lokahóf í Lava-sal Bláa lónsins. Miðasala gengur vel en enn er til eitthvað af miðum þannig að þeir sem ætla að skella sér á lokahófið eru hvattir til þess að hafa samband sem fyrst við Eirík í síma 863 2040 eða í Gula húsinu.
Grindvíkurliðið fór til Eyja í gærkvöldi því veðurspáin í dag og fram að hádegi á morgun er slæm en samkvæmt reglugerð KSÍ verður öll lokaumferðin að fara fram á sama tíma, þ.e. kl. 14 á morgun. Mikið er í húfi en aðeins sigur gulltryggir Grindavík áfram sæti í efstu deild. Í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá því fyrsta lokahófið var haldið í Festi í neðri sal með mat og skemmtun 1981 verður ýmislegt gert til þess að rifja upp gamla og góða tíma á lokahófinu í Lava-salnum annað kvöld. Lokahóf fótboltans hefur verið hápunktur ársins í skemmtalífi Grindvíkinga og verður svo • Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk. Það er ósk knattspyrnudeildarinnar á þessum tímamótum að bæjarbúar styðji við bakið á fótboltanum í bænum með því að mæta á glæsilegt lokahóf og búa til flotta stemmningu eins og var í Festi hér áður fyrr.
áfram. Lokahófið var fyrst haldið í efri sal Festis með kaffisamsæti 1979 og 1980. Grindvíkingar
eru hvattir til þess að standa saman og fjölmenna saman á stærstu skemmtun
ársins.
• Hlaðborð að hætti Bláa lónsins stundvíslega kl. 20:00.
• Veislustjóri: Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði.
• Keyrum‘etta í gang - Söngatriði með Valgerði Maríu og Láru Lind.
• Sjúddirarirei - Hinn eini og sanni Gylfi Ægisson syngur sjómannalög.
• 30 ár í skemmtanabransanum: Endurkoma aldarinnar, Halli Pétur og Hilmar Knúts,
• Sprell og búktal: Bjarki Guðmunds og Einar Lár.
• Óperusöngvarinn Jón bróðir tekur þekktar aríur.
• Markmannsdúett: Óskar Péturs og Elías Fannar.
• Meistaraflokkur kvenna skemmtir.
• Happdrætti og verðlaunaafhendingar.
• Heyrst hefur að ein ástsælasta söngkona landsins bíði eftir góðu veðri og mæti sem
gestasöngvari á lokahófið.
• Ein besta danshljómsveit landsins, hljómsveit Ara Jónssonar (Roof Tops) sér um ballið.
Miðaverð á skemmtun og ball: 5.900 kr.
Miðaverð á ball: 1.900 kr.