Komdu hugmynd í framkvćmd! - Áfram Grindavík!

  • Fréttir
  • 29. september 2011

Kæru Grindvíkingar! Okkar langar að sjá fleiri fulltrúa ykkar skráða núna um helgina, 30. september til 2. október, þegar Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Suðurnesjum. Viðburðurinn er haldinn í þeim tilgangi að hjálpa hugmyndum að verða að veruleika.

Grindvísk fyrirtæki hafa stutt myndarlega við bakið á þessum eintaka viðburði en nú viljum fá sjá fleiri skrá sig. Þátttakendur mæta á staðinn, með eða án hugmyndar, og fá innblástur og leiðsögn við að byggja upp viðskiptahugmynd sem gæti í framtíðinni orðið að fullvaxta fyrirtæki og atvinnutækifæri.

Viðburðurinn er fyrir alla, unga sem aldna, þá sem hafa hugmynd að vöru eða þjónustu og einnig þá sem langar að hjálpa hugmyndum annarra við að verða að veruleika.

Dagskrá og aðrar upplýsingar um viðburðinn má finna á www.anh.is

Umsjónaraðilar Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál