Ljósmyndasafni Grindavíkur hefur borist þó nokkuð af ljósmyndum í vor og sumar. Nú er búið að setja þær flestar inn með bráðabrigða-heiti, en enn vantar réttan texta við margar þeirra - full nöfn fólks og tilefni myndar. Þeir sem þekkja til og hafa áhuga á að skoða myndasafnið, geta sjálfir sett inn athugasemdir við hverja mynd og þannig hjálpað okkur að hafa textann réttan og best er ef ár og skýringar fylgja!
Til að finna þessar myndir þarf að fara í reitinn "Veljið ljósmyndara" og smella á nafn í fellilistanum sem kemur upp. Þeir sem eiga nýjustu myndirnar núna eru: Kristinn Ben.,Pétur í Höfn, Einar Tönsberg, Sigurður Vilmundsson og Vigfús Markússon. Endilega skoðið og setjið inn upplýsingar ef þið þekkið myndefnið - góða skemmtun!