Erla Sif ćfir átta sinnum í viku

  • Fréttir
  • 25. september 2011

Grindvíkingurinn Erla Sif Arnardóttir  sem er 17 ára er hluti af sundliði Grindvíkinga sem þessa stundina eru að synda maraþonsund til styrktar Garðari Sigurðssyni, fertugum sjómanni í Grindavík sem glímir við góðkynja æxli við talstöðvar heilans.  Víkurfréttir tóku tal af Erlu og kynntumst þessari duglegu sundkonu aðeins betur. 

„Helgin leggst alveg rosalega vel í mig eins og alla aðra í liðinu. Það er mjög góð stemning í hópinum, það er að koma fólk sem er löngu hætt að æfa sem ætlar að taka þátt í sundinu með okkur um helgina. Ég er viss um að þetta eigi eftir að heppnast vel vegna þess að sundhópurinn nær svo vel saman, þrátt fyrir mikinn aldursmun."

Hvernig komu þessi styrktarsund upp, hvernig hófst þetta?

„Við krakkarnir vorum að spjalla saman í pottinum og spá í það hvernig við gætum látið gott af okkur leiða og þá kom upp í umræðunni að Garðar gæti ekki unnið og að enginn hefði styrkt hann. Við þekktum líka börnin hans og vissum að aðstæðurnar væru erfiðar. Það segir sig sjálft að það er erfitt að hætta að geta sinnt ævistarfi sínu aðeins fertugur."

Erla segist persónulega stefna að því að halda áfram að æfa sund eins og staðan er í dag, hún hefur ekki sett sér einhver sérstök markmið hvað það varðar. Erla segist jafnframt eiga sér nokkur áhugamál ásamt sundinu t.d. að horfa á bíómyndir, vera með vinum, púsla og mála.

Erla byrjað fyrst að æfa sund þegar hún var 9 ára. „Þá var ég samt ekki að æfa fyrir alvöru, var alltaf að hætta og byrja aftur, ein pásan varð að hálfu ári minnir mig. En ég byrjaði fljótlega eftir að Magnús Már Jakobsson byrjaði að þjálfa og hef ekki hætt síðan, þá var ég 11 ára."

Hjá Erlu eru æfingar 8 sinnum í viku, 3 morgunæfingar frá kl. 6-7 sem eru á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Svo eru 5 kvöldæfingar frá 16:50 til 19:50 sem eru bæði sund og þrekæfingar. „Því miður kemst ég ekki á morgunæfingarnar vegna þess að þá hef ég ekki tíma til þess að fara heim fá mér að borða og græja mig fyrir skólann, ég þarf að taka rútuna sem kemur í Grindavík um 07:25."

Erla nefndi það sérstaklega í lokin að það væri mjög gaman hjá krökkunum núna þar sem þau væru að vinna sig upp úr smá lægð og það væri að fjölga í sunddeildinni, það telur hún afar ánægjulegt.

En hvað er í uppáhaldi hjá Erlu Sif?

Skyndibitinn

Klárlega pizza

Bókin

Twilight bækurnar

Tónlist

Ég er eiginlega bara alæta á tónlist

Kvikmynd

Ég er mikið hrifin af Pirates of the Caribbean og grínmyndum yfir höfuð. Ég mæli sérstaklega með myndinni Horrible bosses.

Sjónvarpsþættir

Ég fylgist nánast ekkert með þáttum, en ég ligg yfir bíómyndum.

Drykkur

Vatn og appelsín

Matur

Kjötsúpan hennar mömmu!

Íþróttamaður

Erla Dögg og Michael Phelps

Hlutur

Ipodinn

Flíkin

Náttbuxur og kósý peysa

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!