Fyrir leik Grindavíkur og Fram í dag verður upphitun á Grindavíkurvelli fyrir alla krakka. Kl. 15 verða boltaþrautir fyrir alla krakka og þá verða grillaðir hamborgarar á góðu verði fyrir alla fjölskylduna. Þá verður Stinningskaldi með upphitun við Framsóknarhúsið. Grindavíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna á Grindavíkurvöll og muna að taka með sér leikskrána sem kom út um helgina því hún gildir sem aðgöngumiði á leikinn fyrir alla fjölskylduna.