Annað árið í röð gefur Grindavíkurbær út upplýsingarit um flest íþrótta- og tómstundafélög sem starfa í Grindavík. Óhætt er að segja að framboðið sé töluvert og ættu flestir að geta fundið sér félagsskap við hæfi. Upplýsingaritið er hægt að nálgast líka hér.
Í pistli Kristins J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúa í upplýsingaritinu segir m.a.:
„Í nýlegri könnun sem gerð var á meðal grunnskólabarna í vor kemur fram að þátttaka þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi er mikil og sérstaklega er þátttaka þeirra í íþróttum mjög mikil. Sem dæmi má nefna að 75% stúlkna í 7. bekk (núverandi 8. bekk) stunduðu íþróttir 4x í viku eða oftar með íþróttafélagi. 63% drengja í 6. bekk (núverandi 7. bekkur) svara því líka til að þeir æfi með íþróttafélagi 4x eða oftar. En það er ekki magnið heldur gæðin í starfinu sem skipta máli. Flest íþrótta- og tómstundafélög í Grindavík leggja metnað í það að ráða til sín hæfa og vel menntaða þjálfara/leiðbeinendur og því ber að fagna. En það eitt og sér skiptir ekki máli ef það er ekki gaman og áherslan á árangur ber gleðina ofurliði og jafnframt að einstaklingurinn fær ekki að njóta sín í íþróttunum á sínum forsendum. Í sömu könnun kemur til dæmis fram hjá þeim, sem hafa hætt í íþróttum, að ein af ástæðum þess að þau hættu væri vegna of mikillar samkeppni og það er ekki gott þegar um barna- og unglingastarf er að ræða.
Sl. vor skrifuðu Grindavíkurbær og UMFG undir samstarfssamning sem ætlað er að efla samstarf bæjaryfirvalda í Grindavík og UMFG um eflingu íþrótta-starfs í Grindavík með megináherslu á öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 - 16 ára. Samningurinn byggir á nokkrum þáttum en meginstefna er;
- að bjóða upp á fjölbreytt starf þannig að allir fái tækifæri til þátttöku í samræmi við áhuga, vilja og getu
- að efla foreldrastarf
- að ná árangri í forvörnum með aukinni fræðslu um skaðsemi ávana- og fíkniefna
- að tryggt sé að stúlkur og drengir fái jöfn tæki-færi til að stunda íþróttir og jafnræðis sé gætt þegar kemur að ráðningu þjálfara fyrir kynin, úthlutun æfingatíma o.s.frv.
Jafnframt er kveðið á um að til að stuðla að áframhaldandi möguleikum barna og ungmenna að stunda fleiri en eina íþróttagrein verði aðeins innheimt eitt æfingagjald pr. barn óháð fjölda íþróttagreina sem barnið stundar. Á það við um öll börn og ungmenni frá 6 ára til og með 16 ára. Æfingagjaldið er 20.000 kr. og gerist íþrótta-iðkun varla ódýrari á landsvísu.
Rannsóknir hafa um árabil sýnt að sjálfsmynd unglinga sé að miklu leyti mótuð í gegnum þátttöku í frístundum og tómstundastarfi. Miklu skiptir hvers eðlis tómstundir þeirra eru. Niðurstöður rannsókna sýna að skipulögð starfsemi í umsjá ábyrgra aðila er líklegri til að hafa uppbyggjandi áhrif í lífi þeirra en starf sem er ekki skipulagt og í umsjá ábyrgra aðila. Þá dregur skipulagt tómstundastarf úr líkum á að unglingar tileinki sér lífstíl sem einkennist af áhættuhegðun svo sem notkun vímuefna.
Framboð á tómstundum fyrir fullorðna sem eldri borgara er jafnframt nokkuð gott í Grinda-vík og vil ég hvetja sem flesta til að finna sér félagskap við hæfi - framboðið er nægt. Foreldra hvet ég til að vera virka í öllu foreldrastarfi og sýna börnum sínum stuðning í því tómstundastarfi sem ÞAU kjósa sér að taka þátt í.
Byggjum upp jákvætt samfélag - tökum þátt."