Námskeið í fríhendisteikningu og vatnslitun hófst hjá Greip í Grindavík síðastliðið þriðjudagskvöld. Að þessu sinni var námskeiðið aðeins ætlað félagsmönnum. Kennari er Elva Hreiðarsdóttir myndlistamaður og kennari. Elva á langan og glæstan feril sem myndlistamaður og hefur haldið fjölda sýninga hérlendis og erlendis.
Elva rekur vinnustofu að Korpúlfsstöðum í Reykjavik og er fyrirhugað að brjóta upp kennslufyrirkomulagið með einni vinnuferð að korpúlfsstöðum.
Allir geta teiknað. Einbeitingin leynir sér ekki. Einhver sagði: „Var rosalega ánægð með kvöldið og hlakka til næsta þriðjudagskvölds". Getur kennari beðið um betri meðmæli.
Fyrirhugað er að halda annað námskeið. Þeir sem hafa áhuga á að vera með á næsta námskeiði vinsamlegast hafið samband við þórunni Öldu í síma 822 7987 þannig að hægt sé að kanna þátttöku.