Grindavík tapaði fyrir FH 1-3 á Grindavíkurvelli í úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Þegar tvær umferðir eru eftir er Grindavík 2 stigum frá Fram sem er í næstneðsta sæti en þessi lið mætast á Grindavíkurvelli í næstu umferð og er því úrslitaleikur um fallið. Í lokaumferðinni sækir Grindavík ÍBV heim en Fram tekur á móti Víkingi sem er þegar fallið.
FH var 1-0 yfir í hálfleik og bætti við tveimur mörkum í upphafi seinni hálfleiks en Magnús Björgvinsson lagðaði stöðuna fyrir Grindavík.
„Við erum auðvitað að spila á móti góðu liði en við vorum svolítið sofandi í fyrri hálfleik. Þá náðu FH-ingar að byrja að spila og voru erfiðir en í gegnum allan leikinn náðu þeir ekki að galopna leik okkar," sagði Ólafur Örn Bjarnason, spilandi þjálfari Grindvíkinga við mbl.is.
„Þeir skoruðu mark í fyrri hálfleik þegar við höfðum nóg af mönnum til að koma í veg fyrir það. Menn voru ekki ánægðir með fyrri hálfleikinn. Samt vorum við bara einu marki undir og ætluðum að snúa taflinu við eftir hlé en þess í stað var FH búið að skora tvö mörk eftir fimm mínútur úr föstum leikatriðum, sem er í raun óafsakanlegt. Gegn svona góðu liði var leikurinn þá í raun búinn en ég er ekki ósáttur við að menn reyndu að klóra í bakkann og við fengum mark og næstum því annað en svona lið eins og FH gerir út um leikinn. Mér finnst mjög svekkjandi, miðað við færin sem við fengum og mörkin sem fengum á okkur í byrjun seinni hálfleiks, að leikurinn skyldi vera búinn þá."