Grindavík sækir KR heim í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag. Leiktíminn er óvenjulegur eða kl. 17:15. Mikið er í húfi fyrir bæði lið, KR að berjast á toppnum en Grindavík í botnbaráttunni. Grindavík hefur verið á ágætu skriði að undanförnu og ekki tapað í síðustu sex leikjum sínum, unnið einn af þeim en gert fimm jafntefli.
Hjá Grindavík er Jamie McCunnie meiddur og verður líklega ekki með í kvöld. Þá verður Bogi Rafn Einarsson ekki meira með á leiktíðinni en hann fór úr axlarlið gegn Stjörnunni. Guðmundur Bjarnason og Paul McShane eru meiddir og þá er óvíst með Hauk Inga Guðnason.
KR gefur út leikskrá á netinu fyrir alla heimaleiki. Hún er fjölbreytt og skemmtileg og er hún komin út fyrir leikinn gegn Grindavík og má nálgast hana hér.