Uppskeruhátíđ 3. og 4. flokks í dag - Foreldrar velkomnir

  • Fréttir
  • 14. september 2011

Uppskeruhátíð 4. flokks og 3. flokks karla og kvenna í knattspyrnu verður haldin miðvikudaginn 14. september kl. 17:00 á sal Grunnskóla Grindavíkur. Foreldrar eru líka hjartanlega velkomnir og þeir hvattir til þess að mæta. Dagskrá:

• Bingó - veglegir vinningar

 

• Verðlaunaafhending

• Hið fræga kökuhlaðborð er á sínum stað en undanfarin ár hafa flottustu foreldrar á Íslandi (Grindavíkurforeldrarnir) séð um að baka og lagst á eitt við að stútfylla sameiginlegt hlaðborð af kræsingum.

Kv.

Unglingaráð


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir