Komdu hugmynd í framkvćmd á 48 klukkustundum - Grindvíkingar hvattir til ađ vera međ

  • Fréttir
  • 12. september 2011

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Suðurnesjum fer fram helgina 30. september til 2. október næstkomandi í húsnæði Keilis á Ásbrú. Viðburðurinn er sá fyrsti af sex viðburðum sem haldnir verða víðsvegar um landið næstu mánuðina í þeim tilgangi að virkja fólk til athafna og láta góðar hugmyndir verða að veruleika.

Verkefninu var formlega ýtt úr vör fyrir helgi í Keili þegar aðstandendur atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar komu saman til myndatöku.

Viðburðurinn er fyrir alla þá sem þyrstir í að skapa og framkvæma hvort sem þeir eru með viðskiptahugmynd eða ekki. Á viðburðinum fá þátttakendur tækifæri til þess að vinna að frumgerð vöru eða þjónustu undir leiðsögn sérfróðra aðila. Einnig munu reyndir fyrirlesarar miðla þekkingu sinni varðandi framgöngu hugmynda og stofnun fyrirtækja.

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin er samstarfsverkefni Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs og sveitarfélaga landsins.

Landsbankinn veitir verkefninu stuðning og eru viðburðirnir haldnir í nánu samstarfi við bankann. Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Suðurnesjum er haldin með stuðningi sveitarfélaganna á Suðurnesjum; Grindavíkurbæ, Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ, sveitarfélaginu Garði og sveitarfélaginu Vogum.

Einnig styðja fjölmörg fyrirtæki og samtök af Suðurnesjum við viðburðinn með styrkveitingum og matargjöfum. ?
Allir geta tekið þátt og það kostar ekkert.

Skráning er hafin á www.anh.is

Grindvíkingar eru hvattir til þess að vera með í þessu skemmtilega verkefni.

Myndin: Aðstandendur atvinnu- og nýsköpunarhelgar á Suðurnesjum í Keili fyrir helgi. VF-mynd: Hilmar Bragi


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!