Það voru himneskar veigar er biðu Gunnars á Völlum, knattspyrnusérfræðings mbl.is, þegar hann mætti í Grindavíkina þegar heimamenn fengu Stjörnumenn í heimsókn í Pepsí-deildinni. Það var sama i hvaða horn var litið Grindvíkingar sáu um að strá rósum fyrir fætur Gunnars. En Adam var ekki lengi í paradís og til að gera langa sögu stutta þá var Gunnar rekinn af vellinum fyrir að hafa vín um hönd! Fréttainnslagið á mbl.is má sjá hér.