Grindavíkurstelpur taka á móti ÍBV í úrvalsdeild kvenna í dag og hefst leikurinn kl. 18:00. ÍBV er í 3. sæti deildarinnar og því erfiður leikur hjá Grindavík en ætli okkar stelpur sér að halda sæti sínu í deildinni er ljóst að liðið verður að fara með sigur af hólmi. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á stelpunum.