130. fundur Umhverfisnefndar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 17. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Guðbjörg Eyjólfsdóttir (GE), Björgvin Björgvinsson (BB) og Jón Ólafur Sigurðsson (JÓS).
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Gunnarsson, Upplýsinga- og þróunarfulltrúi.
Dagskrá:
1. 1108026 - Umhverfisverðlaun 2011
Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Staðarhraun 29.
Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Suðurvör 3.
Verðlaun fyrir vel heppnaða viðhald á gömlu húsi: Ásabraut 1, Ásbyrgi.
Verðlaun fyrir snyrtilegasta fyrirtækið: Bláa lónið.
Nefndin þakkar garðyrkjustjóra fyrir aðstoðina við valið.
2. 1108027 - Þakkir til Vinnuskólans
Nefndin þakkar Vinnuskólanum fyrir vel unnin störf á líðandi sumri. Bærinn er ákaflega snyrtilegur svo eftir er tekið.
Þar sem þetta er síðasti fundur nefndarinnar, sem færist nú undir skipulags- og bygginganefnd, vill nefndin leggja áherslu á að umhverfismál skipi stóran sess undir stjórn nýrrar nefndar. Gagnvart umhverfsmálum má aldrei sofna á verðinum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:45