Grindavík og Víkingur gerðu markalaust jafntefli í úrvalsdeild karla í gærkvöldi í heldur tilþrifalitlum leik þar sem Grindavík var þó betri aðilinn. Grindavík er nú með 17 stig líkt og Keflavík og Þór en Fram hefur 11 stig og Víkingur 9.
„Við vorum mjög ósáttir fyrir fyrri hálfleik. Allir leikmenn áttu mikið inni. Við vorum með vind í bakið og þeir pressa okkur til að sparka langt og það er erfitt að gera það á blautum velli og því fór boltinn oft aftur fyrir. Við vildum gera betur. Það áttu allir mikið inni og það kom ágætlega fram í seinni hálfleik," sagði Ólafur Örn Bjarnason, þjálfari Grindavíkur við Vísi eftir leikinn.
„Á móti vindinum í seinni hálfleik sköpuðum við okkur ágætis möguleika. Við sluppum í gegn einu sinni og Scotty á nokkur skot og við höldum þeim frá okkar marki. Við gátum tekið þrjú stig en þegar við klárum ekki færin þá er það erfitt. Það vantar að menn séu með smá ís í maganum þegar þeir eru komnir að vítateignum. Ég man ekki eftir góðu færi hjá Víkingi sem er jákvætt en auðvitað hefðum við vilja þrjú stig."
Grindavík hefði með sigri getað farið langt með að losa sig við falldrauginn. „Við settum leikinn þannig að upp að með sigri gætum við komist upp fyrir nokkru lið og þá gætu við farið að stefna hærra og hugsa upp á við en þú ert ekkert betri en staðan í deildinni segir til um og þú þarft vinna eftir þeirri stöðu sem þú ert í."
„Það er þannig en ef við hefðum unnið í dag og komist upp fyrir 2 til 3 lið þá hættir maður að hugsa til baka en á meðan það eru bara 2 lið fyrir aftan okkur á er maður alltaf að spá í því, þannig er það bara. Við verðum að vinna út úr þeirri stöðu sem við erum í og ef við höldum stöðugleika fram á við og klárum færin okkar þá eigum við að geta náð góðum úrslitum," sagði Ólafur en Grindavík hefur nú leiki fjóra leiki í röð án taps.
„Þetta er í fyrsta sinn í sumar sem við getum spilað nokkra leiki í röð á sömu mönnunum, sérstaklega í vörninni. Það gefur smá stöðugleika," sagði Ólafur.