Ţriđji sigur Grindavíkurstúlkna í röđ
Grindavíkurstelpur skelltu Þrótti með 3 mörkum gegn 2 í úrvalsdeild kvenna í hörku leik á Grindavíkurvelli. Dernelle Mascall skoraði tvö fyrstu mörk Grindavíkurstúlkna og Shaneka Gordon það þriðja í seinni hálfleik. Þrótti tókst að minnka muninn með tveimur mörkum í lokin. En þriðji sigurleikur Grindavíkurstúlkna í röð staðreynd, þrátt fyrir að hafa misst nokkra lykilmenn í nám til Bandaríkjanna að undanförnu.
Á meðal varamanna var hin 13 ára gamla Ingibjörg Sigurðardóttir sem kom inn á og átti þátt í þriðja marki Grindavíkur. Hún stóð sig með prýði líkt og aðrir leikmenn liðsins sem börðust eins og grenjandi ljón allan leikinn.
Staðan í deildinni, þegar fjórar umferðir eru eftir, er þannig:
1. Stjarnan 14 13 0 1 40:12 39
2. Valur 14 10 2 2 39:11 32
3. ÍBV 14 8 3 3 30:9 27
4. Þór/KA 14 7 2 5 25:27 23
5. Breiðablik 14 6 2 6 25:26 20
6. Fylkir 14 6 2 6 20:24 20
7. Afturelding 14 3 3 8 14:31 12
8. KR 14 2 4 8 14:24 10
9. Grindavík 14 3 1 10 16:38 10
10. Þróttur 14 1 3 10 15:36 6