Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson hefur verið valinn í íslenska A-landsliðið í körfubolta í fyrsta sinn. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Ólaf sem hefur tekið miklum framförum undanfarin misseri. Nýr liðsmaður Grindavíkur, Sigurður Gunnar Þorsteinsson sem áður var með Keflavík, var einnig valinn í landsliðshópinn sem tekur þátt í Norðurlandamóti í Svíþjóð 23.-27. júlí nk.