Kaffihúsið Bryggjan verður með bryggjuball laugardagskvöld þar sem Ólafur nikkari mætir á svæðið og þenur nikkuna. Að sögn þeirra Alla og Krilla staðarhaldara á Bryggjunni er um að gera fyrir þá sem eru í bænum að lyfta sér upp og skella sér á bryggjuna.