Vatnsskarðsnámur
Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 samþykkti bæjarstjórn Grindavíkurbæjar deiliskipulag Vatnskarðsnáma án breytinga. Skipulagið var samþykkt þann 13. apríl 2011. Ein athugasemd barst á auglýsingartíma og hefur bæjarstjórn afgreitt hana og sent viðkomandi umsögn sína.
Deiliskipulagið hefur verið sent til athugunar hjá Skipulagsstofnun og tekur gildi við auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíður Grindavíkurbæjar www.grindavik.is og hjá yfirmanni tæknideildar Grindavíkurbæjar á Víkurbraut 62.
Fh. Bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar
Ingvar Þ. Gunnlaugsson, forstöðumaður tæknideildar